Flott hjá þeim!

Mynd076-1Var að skutla einhverjum út á flugvöll á Höfn, þegar ég lenti í umferðarteppu. Leit út fyrir að vera stórslys - bílar þvers og kruss yfir veginn - en í ljós kom að þar voru atvinnubílstjórar að mótmæla háu eldsneytisverði, með því að loka hringveginum. Flott hjá þeim! Hvenær verða bændur með einhverja skemmtilega uppákomu að fordæmi evrópskra starfsbræðra sinna til að mótmæla kjörum sínum, þegar öll aðföng hækka í verði? Við náðum reyndar flugvélinni...
mbl.is Bílstjórar lokuðu hringvegi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband